Eldra efni: Tölvufærni

Æfðu þig í fingrasetningu og vélritun á Netinu

Skráð 17 July 2008
3 athugasemdir frá lesendum

Touch Typing nefnist einfaldur, netbundinn hugbúnaður (flash) sem ég nota gjarnan með nemendum mínum, þeim sem þurfa á að halda að æfa sig í fingrasetningu og vélritun. Eins ágætt og forritið er þá hefur það einn stóran galla, það vantar tilfinnanlega íslenskt lyklaborð. Í von um að bæta úr þessu skrifaði ég höfundinum Ezra Molkho [...]


Hvers vegna nýta kennarar ekki tæknina?

Skráð 10 October 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Fræðimaðurinn, kennarinn og bloggarinn David Warlick veltir fyrir sér ástæðum þess að kennarar virðast svo hikandi við að tileinka sér tækninýjungar í færslu sem hann nefnir “Teachers & Technology - a rant!”.
Í greininni veltir Warlick fyrir sér spurningu sem ég hef sjálfur oft velt fyrir mér og tengist þeirri staðreynd að kennarar hafa ótrúlegt [...]


Sagan af Julie Amero

Skráð 26 February 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Þann 5. janúar sl. var Julie Amero, 40 ára forfallakennari við Kelly Middle School í Bandaríkjunum, fundin sek um að valda 11 og 12 ára nemendum sínum andlegum og tilfinningalegum skaða með því að birta með ráði eða sökum kæruleysis klámfengið myndefni í kennslustund. Amero bíður allt að 40 ára fangelsisdómur. Sjálf segist hún saklaust [...]


Þeirra staður - þeirra stund

Skráð 30 January 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar og mjög áhugaverðrar rannsóknar Demos hafa breskir unglingar tekið upplýsingatækninni fagnandi og fullkomlega samþætt hana daglegu lífi. Meirihluti breskra ungmenna nýtir tæknina til að viðhalda félagslegum tengslum frekar en mynda ný, sækja og senda myndir á Netið og í sumum tilfellum til að smíða eigin vefsíður og jafnvel heilu vefina. Kennurum hefur [...]


Skemmtileg músarþjálfun

Skráð 26 October 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Í kennslu minni á starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti stend ég ósjaldan frammi fyrir því að nemendur þurfa á að halda kennslu og/eða þjálfun í notkun tölvumúsar.


Frá toppi til táar

Skráð 27 August 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Í greininni “First do no harm: developing teachers’ ability to use ICT in subject teaching: some lessons from the UK” fjalla höfundar um áhugaverða tilraun sem gerð var til þess að kanna hvort svo kölluð “bottom-up” nálgun henti betur en “Top Down” (vantar íslenska þýðingu á þessum hugtökum) aðferðir þegar að því kemur að vekja [...]


Fjórði hver íbúi í Evrópu hefur takmarkaða tölvufærni og yfir helmingur notar Netið lítið sem ekkert.

Skráð 21 June 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Niðurstöður nýlegrar könnunar sem framkvæmd var á vegum hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat (Statistical Office of the European Commission), benda sterklega til takmarkaðrar tölvunotkunar og lítillar netnotkunnar meðal íbúa sambandsins. Könnunin, sem nefnist “2005 Community survey on ICT usage in households and by individuals”, var framkvæmd á seinni hluta síðasta árs og tók til 123.941 heimila og [...]


Úr myndasafninu

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”. (0)
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    (0)
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    (0)
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
    (0)
  • Gagn og gaman