Fyrir stuttu varð á vegi mínum forvitnileg bloggfærsla eftir Mark nokkurn Shead þar sem hann fjallar um þau tækifæri sem starfsmaður hefur á því að vaxa og efla sig í starfi. Í greininni birtir Shead línurit og hugtakið “Work Zone” til að lýsa stöðu og starfsþróun starfsmanna. Við lestur greinarinnar fór ég að velta fyrir [...]
Fræðimaðurinn, kennarinn og bloggarinn David Warlick veltir fyrir sér ástæðum þess að kennarar virðast svo hikandi við að tileinka sér tækninýjungar í færslu sem hann nefnir “Teachers & Technology - a rant!”.
Í greininni veltir Warlick fyrir sér spurningu sem ég hef sjálfur oft velt fyrir mér og tengist þeirri staðreynd að kennarar hafa ótrúlegt [...]
Þann 5. janúar sl. var Julie Amero, 40 ára forfallakennari við Kelly Middle School í Bandaríkjunum, fundin sek um að valda 11 og 12 ára nemendum sínum andlegum og tilfinningalegum skaða með því að birta með ráði eða sökum kæruleysis klámfengið myndefni í kennslustund. Amero bíður allt að 40 ára fangelsisdómur. Sjálf segist hún saklaust [...]
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar og mjög áhugaverðrar rannsóknar Demos hafa breskir unglingar tekið upplýsingatækninni fagnandi og fullkomlega samþætt hana daglegu lífi. Meirihluti breskra ungmenna nýtir tæknina til að viðhalda félagslegum tengslum frekar en mynda ný, sækja og senda myndir á Netið og í sumum tilfellum til að smíða eigin vefsíður og jafnvel heilu vefina. Kennurum hefur [...]
Windows stýrikerfið og Office safnið eru án efa mikilvægustu hugbúnaðarlausnir Microsoft og vandfundinn sá tölvunotandi sem hefur ekki í það minnsta einhverja reynslu af notkun hvoru tveggja. Nú hafa nýjar útgáfur af Windows og Office litið dagsins ljós og þrátt fyrir ólíkar skoðanir netverja á ágæti þeirra má telja nokkuð öruggt að þær verði ráðandi [...]
Ecar er heiti á rannsóknarverkefni á vegum Educause þar sem markmiðið er að kanna viðhorf og notkun nemenda á háskólastigi til upplýsingingatækninnar í Bandaríkjunum með það í huga að niðurstöðurnar komi skólastjórnendum og aðilum sem hafa með hagnýtingu upplýsingatækninnar í skólastarfi að gagni. Ecar var fyrst framkvæmd árið 2004 og tóku þá 13 háskólar þátt. [...]
Niðurstöður hinnar árlegu Teachers Talk Tech könnunar þar sem rannsökuð er notkun og viðhorf bandarískra grunnskólakennara til upplýsingatækninnar, eru nú aðgengilegar á Netinu. Könnunin er framkvæmd í fjórða skiptið í ár og er fróðlegt að bera saman niðurstöður á milli ára. Þátttakendur eru yfir 1000 kennarar víðsvegar um Bandaríkin.
Teachers Talk Tech er ætlað að meta [...]
Niðurstöður nýlegrar könnunar sem framkvæmd var á vegum hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat (Statistical Office of the European Commission), benda sterklega til takmarkaðrar tölvunotkunar og lítillar netnotkunnar meðal íbúa sambandsins. Könnunin, sem nefnist “2005 Community survey on ICT usage in households and by individuals”, var framkvæmd á seinni hluta síðasta árs og tók til 123.941 heimila og [...]
Horizon skýrslan spáir fyrir um mikilvægar tækninýjungar sem koma til með að hafa áhrif á nám og kennslu í menntastofnunum á efri skólastigum næstu árum að mati skýrsluhöfunda. Horizon skýrslan er afurð samstarfsverkefnis New Media Consortium og Educause og er gefin út árlega. Horizon 2006 hefur verið birt og er áhugaverð lesning fyrir alla [...]
Samkvæmt tölum frá árinu 2001 eru fleiri Bretar í aldurshópnum 60 ára og eldri heldur en 16 ára og yngri. Það er því sannarlega mikilvægt að rannsaka hagnýtingu og aðgengi eldri notenda að vefnum. Hér eru helstu niðurstöður einnar slíkrar.