Á kynningardegi Námsgagnastofnunar sem haldinn verður í Árbæjarskóla miðvikudaginn 20. ágúst nk. mun ég opinbera nýja íslenska handbók í Sketchup teiknihugbúnaðinum magnaða frá Google. Handbókin verður aðgengileg án endurgjalds á vef Námsgagnastofnunar á pdf sniði.
ISSUU er ókeypis þjónusta sem gerir birtingu PDF skjala á Netinu að leik einum og skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða myndir, tímarit, handbækur, greinar eða heilu bækurnar. Ólíkt því þegar vísað er beint í PDF skjöl gerir ISSUU netverjum kleift að blaða í gegnum PDF skjöl á gagnvirkan hátt líkt og [...]
Adobe fyrirtækið kynnti nýlega til sögunnar útgáfu 1.0 af Digital Editions hugbúnaðinum sem gerir notendum kleift að safna saman, sýsla með og lesa rafbækur (ebooks). Forritið er fáanlegt endurgjaldslaust ásamt nokkrum sýnishornum af rafbókum ávef Adobe.
Á TED 2007 ráðstefnunni lýsti bandaríski líffræðingurinn E. O. Wilson draumi sínum að vísindamenn og áhugafólk um allan heim sameinist um að skapa netbundið alfræðirit yfir öll lífsform á jörðinni.
I wish that we will work together to help to create the key tool we need to inspire preservation of earth’s biodiversity and let us call [...]
eLearning Papers er vefrit sem nýlega var hrint úr vör að tilstuðlan Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og gefið verður út annan hvern mánuð. eLearning Papers mun innihalda greinar, viðtöl og hvers kyns umfjöllun um efni sem tengist tölvustuddu námi (elearning), en samantekt úr hverri grein verður birt á 19 tungumálum. Íslenska er því miður ekki þar á [...]