Eldra efni: Vefrænt

Diigo - félagslegt tengslanet og gagnasöfnun

Skráð 11 August 2008
Engar athugasemdir frá lesendum

Diigo tengslanetið hefur notið jákvæðrar umfjöllunar netverja síðustu vikur og mánuði og þykir m.a. koma að góðum notum við söfnun og miðlun gagna hvort sem það er í persónulegum tilgangi eða faglegum. Ég ákvað láta reyna á þessa þjónustu og verð að segja að mér líst bara nokkuð vel á.


ZAC Browser er einstakur vefskoðari fyrir einhverfa

Skráð 06 June 2008
Flokkur: Vefrænt
2 athugasemdir frá lesendum

John LeSieur er maður sem lætur verkin tala. Árið 2002 eignaðist dóttir hans dreng sem greindur var einhverfur við þriggja ára aldur. Nú hagar þannig til að LeSieur er einn af höfundum KidzCD netvafrans barnvæna og þegar hann komst að því að Zackary, en svon nefnist drengurinn, naut þess að vafra um netið með aðstoð [...]


PicLens - verulega góð viðbót við vefskoðara

Skráð 25 January 2008
Flokkur: Vefrænt
Engar athugasemdir frá lesendum

PicLens er frumleg viðbót (addin) við Firefox, IE og Safari vefskoðarana sem umbreytir þeim í öflug verkfæri til að birta myndir á mun áhrifameiri hátt en áður hefur verið mögulegt. PicLens er sérstaklega spennandi verkfæri fyrir þá sem hafa aðgang að stafrænum kennslutöflum í skólastofunni.


ELGG - MOODLE - FB

Skráð 31 December 2005
2 athugasemdir frá lesendum

Elgg er að mínu viti eitt mest spennandi þróunarverkefni sem verið er að vinna að um þessar mundir á sviði hagnýtra netsamfélaga í námi og kennslu. Hönnuðir Elgg, þeir Ben Wedmuller og David Tosh, nota orðið “Learning landscape” yfir sköpunarverk sitt, sem beinast liggur við að þýða sem námslandslag á íslensku, en aðrar hugmyndir eru [...]


Hvað eru vefstaðlar

Skráð 30 December 2005
Flokkur: Asides, Vefrænt
Engar athugasemdir frá lesendum

Góð grein um vefstaðla eftir Andra Sigurðsson.


Flickr myndasýningum varpað á vefi

Skráð 25 December 2005
Flokkur: Flickr, Vefrænt
Engar athugasemdir frá lesendum

Hinn grískættaði bloggari Paul Stamatiou hefur birt á vef sínum einstaklega sniðuga leið til þess að varpa Flickr myndasýningum (slideshows) á hvaða vefsíðu sem er. Lausn Stamatiou felst í því að skilgreina iframe sem inniheldur Flickr myndasýninguna og þannig samþætta hana viðkomandi vef. [...]


Edublog verðlaunin afhent í annað skiptið

Skráð 19 December 2005
Engar athugasemdir frá lesendum

Edublog verðulaunin er alþjóðleg viðurkenning sem veitt er fyrir bestu bloggvefina á vettvangi skólastarfs, náms og kennslu. Upphafsmaður verðlaunanna er James Farmer, en þau voru fyrst afhent á síðasta ári.
Edublog verðlaunin eru afhent árlega. Hér að neðan er yfirlit yfir sigurvegarana í ár, en þeir voru valdir úr eftirfarandi tilnefningum.

Frumlegasta bloggverkefnið eða þjónusta (Most innovative [...]


Firefox 1.5

Skráð 30 November 2005
Flokkur: Firefox, Vefrænt
Engar athugasemdir frá lesendum

Firefox 1.5 vefskoðarinn er kominn út og er óhætt að hvetja alla netverja að sækja sér útgáfuna hið fyrsta. Firefox 1.5 er bæði umtalsvert hraðvirkari og öruggari en þær útgáfur sem á undan hafa farið. Auk þess inniheldur hann nokkrar spennandi nýjungar sem vert er að skoða nánar.
Ef þú notar ekki Firefox nú þegar smelltu [...]


Tengiliðir og hópar í Flickr

Skráð 22 October 2005
Engar athugasemdir frá lesendum

Flickr býður upp á fjölmarga kosti aðra en hýsingu á myndum notenda. Þar má t.a.m. finna öfluga möguleika sem snúa að samskiptum og samvinnu meðal notenda þjónustunnar. Einföld leið til þess að mynda tengsl við aðra Flickr notendur felst í því að gera viðkomandi að tengilið (contact). Hver notandi getur stofnað til tengsla við ótilgreindan [...]


Staðleysur, iPod og tölvustutt nám

Skráð 20 August 2005
Engar athugasemdir frá lesendum

Robert Viau er prófessor við ríkisháskólann í Georgíufylki í Bandaríkjunum og kennir þar m.a. áfanga þar sem fengist er við útópíur / distópíur. Í grein sem Viau skrifar í Campus-technology lýsir hann því hann því hvernig hann samþættir texta, myndir, myndskeið og tónlist á skapandi hátt í kennslunni.
Viau heldur úti vef í tengslum við áfangann [...]


Úr myndasafninu

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”. (0)
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    (0)
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    (0)
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
    (0)
  • Gagn og gaman