Eldra efni: vefsmíði

10 algeng mistök í vefhönnun

Skráð 28 December 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Jakob Nielsen er einn helsti sérfræðingur samtímans á sviði vefhönnunar og notagildisfræða vefsins. Á hverju ári tekur Nielsen saman lista yfir það sem hann kallar Top tíu mistök í vefhönnun og tekur þar m.a. mið af niðurstöðum umfangsmikilla rannsókna sinna. Hér má sjá hvað helst angrar Nielsen á árinu 2006 þegar vefhönnun er annars vegar:


97% vefsvæða standast ekki lágmarks kröfur um aðgengi

Skráð 05 December 2006
1 athugasemd frá lesendum

Alþjóðdagur fatlaðra var haldinn hátíðlegur þann 3. des. sl. og var yfirskrift dagsins að þessu sinni aðgengi að rafrænum upplýsingum eða “E-accessibility”. Takið eftir að ég nota ekki orðalagið “aðgengi fatlaðra” því traust aðgengi að rafrænum upplýsingum er hagsmunamál okkar allra.


Stillingar.is

Skráð 21 November 2006
2 athugasemdir frá lesendum

Á ráðstefnunni “Aðgengi að netinu: Hvar erum við stödd”, sem haldin var þann 14. nóv. síðastliðinn, kynnti Hugsmiðjan nýja þjónustu sem nefnist Stillingar.is.
Stillingar.is er vefþjónusta fyrir eigendur vefsvæða sem vilja koma til móts við þarfir fólks sem á erfitt með að lesa, t.d. vegna lesblindu, sjóntruflana eða sjónskerðingar, og þarf að geta valið lita- og [...]


Internet Explorer 7 er væntanlegur - er vefurinn þinn tilbúinn?

Skráð 18 October 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Microsoft hefur gert heyrikunnugt að nýjasta kynslóð Internet Explorer vefskoðarans, þ.e. Internet Explorer 7, verði fullbúin og aðgengileg Windows notendum nú í októbermánuði. Netverjar hafa þegar fengið tækifæri til þess að kynna sér nýju útgáfuna á ýmsum vinnslustigum og þrátt fyrir fjölmargar nýjungar og endurbætur hafa viðtökurnar á heildina verið lítt uppörvandi fyrir Microsoft.
Ég vil [...]


Opinberir vefir fá falleinkunn í Bretlandi

Skráð 02 April 2006
Flokkur: Asides, vefsmíði
Engar athugasemdir frá lesendum

Samkvæmt nýrri grein á fréttavef BBC fá um 60% allra vefja í umsjá opinberra aðila þar í landi falleinkunn, bæði hvað varðar aðgengi og vefsmíði. Í þessu sambandi er ágætt að rifja aðeins upp niðurstöður úttektar Sjá ehf. fyrir forsætisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga á vefjum ríkis og sveitarfélaga.


Joomla vefumsjónarkerfið - kjörið fyrir skóla og fræðslustofnanir

Skráð 28 March 2006
1 athugasemd frá lesendum

Joomla er öflug hugbúnaðarlausn fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem áhuga hafa á því að koma sér upp vef og viðhalda honum á sem einfaldastan hátt. Joomla er gefið út samkvæmt leyfisskilmálum GNU/GPL og er því öllum frjálst að sækja hugbúnaðinn, aðlaga, dreifa og nýta án endurgjalds. Skólastjórnendur, kerfisstjórar og aðrir sem koma að upplýsingatæknimálum [...]


Origami

Skráð 23 February 2006
2 athugasemdir frá lesendum

Veit einhver þarna úti eitthvað um þetta?


Einföld vefsmíði og vefhýsing í boði Google

Skráð 23 February 2006
2 athugasemdir frá lesendum

Nú geta allir sem vilja sett saman eigin vef og hýst allt að 100MB endurgjaldslaust án þess að þekkja hið minnsta til HTML eða nota sérhæfðan hugbúnað til vefsíðugerðar. Allt í boði frumkvöðlanna í Google sem nýlega opinberuðu vefinn Google Page creator einmitt í þessum tilgangi.
Google page creator þjónustan er einstaklega einföld í notkun og [...]


Vefur 2.0

Skráð 22 February 2006
1 athugasemd frá lesendum

Vefur 2.0 - Ertu tilbúinn? Hádegisverðarfundur um forritunarmál á vefnum fimmtudaginn 2. mars n.k. á Grand Hótel Reykjavík Frá 12:00-14:00.


Frontpage kveður

Skráð 18 February 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Fréttir herma að Microsoft hafði ákveðið að gefa Frontpage upp á bátinn. Get ekki sagt að ég komi til með að sakna þess. En hvað gera þeir sem hafa fram til þessa notað það í skólastarfi, eða kennt á það sem verkfæri í vefsíðugerð? Kannski þetta?


Google kynnir Sketchup 7

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni

    • Sýnishorn af Yosemite myndinni

    • Sýnishorn af sólarmynd