Hvað er WCAG og hvers vegna skiptir það máli?
WCAG (Web Content Accessibility Guidelines) er staðall sem saminn er af alþjóðlega vinnuhópnum Web Content Accessibility Guidelines Working Group og er ætlað að tryggja fötluðum aðgengi að vefnum. Fyrsta útgáfa hans, WCAG 1.0, var birt árið 1999 en eftir margra ára umfangsmikla endurskoðun, sem enn er ekki endanlega lokið, tekur WCAG 2.0 gildi árið 2008.