Óopinberu Web 2.0 verðlaunin. Hér má fá dágott yfirlit yfir 300 web 2.0 vefi sem greindir eru í 38 flokka og þeir bestu verðlaunaðir. [Translate]
Einstaklingsbundið námsumhverfi er þýðing á enska hugtakinu “Personal learning environment” eða PLE eins og það er skammstafað. Einstaklingsbundið námsumhverfi samþættir persónuleg og fagleg áhugasvið ótilgreinds fjölda notenda með það að markmiðið að skapa félagslegan vettvang á Netinu þar sem einstaklingurinn er í fyrirrúmi. Einstaklingsbundið námsumhverfi er opinn og skapandi vettvangur sem styður við formlegt og ...
Vefur 2.0 – Ertu tilbúinn? Hádegisverðarfundur um forritunarmál á vefnum fimmtudaginn 2. mars n.k. á Grand Hótel Reykjavík Frá 12:00-14:00. [Translate]
Getur verið að þetta sé tæmandi listi yfir alla Web 2.0 vefi og þjónustur sem til eru? [Translate]
Frappr er ein af fjölmörgum spennandi vefbundu þjónustum sem sprottið hafa upp á Netinu með tilkomu Google Maps kerfisins og web 2.0 byltingarinnar. Í stuttu máli sagt þá er Frappr ókeypis þjónusta þar sem hver sem áhuga hefur getur sett á laggirnar eigið samfélag á Netinu og boðið öðrum áhugasömum netverjum til þátttöku. Frappr nýtir ...
Elgg er að mínu viti eitt mest spennandi þróunarverkefni sem verið er að vinna að um þessar mundir á sviði hagnýtra netsamfélaga í námi og kennslu. Hönnuðir Elgg, þeir Ben Wedmuller og David Tosh, nota orðið “Learning landscape” yfir sköpunarverk sitt, sem beinast liggur við að þýða sem námslandslag á íslensku, en aðrar hugmyndir eru ...
Vegna þeirrar hröðu þróunar sem á sér stað um þessar mundir á Netinu hefur orðið til hugtakið Web 2.0. Það er engu líkara en vefurinn hafi verið gæddur lífi. Allt í einu er Netið opið og aðgengilegt – gagnvirkt sem aldrei áður. Ekki það að Netið hafi verið lokað fram að þessu, en notendur þess ...
Netið er ekki bara að stöðugt stækka að umfangi og innihaldi heldur er það að taka miklum eðlisbreytingum um þessar mundir. Til þess að skýra þessar breytingar hefur orðið til hugtakið Web 2.0.
Microsoft hefur gert Beta útgáfu af Virtual Earth kortasjánni aðgengilega á vefnum.
Athugasemdir