CommentPress - þegar um texta er að ræða
CommentPress er nýtt þema við WordPress blogglausnina vinsælu sem umbreytir henni í einstakt birtingarkerfi fyrir hvers kyns ritsmíðar og athugasemdir lesenda. CommentPress er eins og sniðið fyrir akademískt umhverfi þar sem kennarar leggja til efni til aflestrar fyrir nemendur og óska eftir gagnrýnum athugasemdum eða skýringum. Ólíkt venjulegum bloggfærslum er CommentPress hannað með lengri færslur [...]


