Close

Svona gerum við

Námsefni

Einfaldar teiknimyndasögur með Comic Life

Teiknimyndasagan er skemmtilegt frásagnarform sem höfðar vel til nemenda á grunnskólastigi og hæglega má nýta á fjölbreyttan hátt í fjölmörgum námsgreinum, s.s. íslensku og tungumálakennslu. Á námskeiðinu verður kennd gerð teiknimyndasagna með aðstoð Comic Life hugbúnaðarins sem er sérstaklega hannaður til slíkra verka. Comic Life er til bæði fyrir Windows og Macintosh stýrikerfið og kostar einungis rétt rúmar 3000 kr.

Einn helsti kostur Comic Life er hversu öflugt það er en einfalt í notkun, enda hefur það reynst mjög vinsælt verkfæri í skólastarfi. Hér má sjá nokkur sýnishorn af verkefnum sem unnin eru í Comic Life:

Fyrirkomulag

Kennsla fer fram í tölvustofu viðkomandi skóla. Einnig er hugsanlegt að notast við fartölvusett ef það er til staðar. Skjávarpi þarf að vera til staðar fyrir tölvu kennara.

Markmið

Að loknu námskeiði eiga nemendur að:

  • geta sett upp teiknimyndasögu með aðstoð sniðmáta í Comic Life
  • geta flutt inn teikningar eða ljósmyndir
  • geta útlitsmótað myndir og reiti
  • geta sett texta við myndir
  • geta vistað teiknimyndasögur úr Comic Life sem myndir eða á HTML sniði til birtingar á vef

Námsgögn

Öll námsgögn á námskeiðinu eru aðgengileg á Netinu og verða kynnt þátttakendum. Hægt er að sækja 30 daga prufuútgáfu af Comic Life á vef útgefanda.

Verð og fjöldi nemenda

Námskeiðið kostar 25.000 fyrir allt að 15 þátttakendur.

Hafðu samband og bókaðu námskeið fyrir skólann þinn