Close

Svona gerum við

Námsefni

Inngangur að Clicker

Clicker er forrit sem var hannað til þess að styðja við lestur og ritun og er í raun margmiðlunarumhverfi þar sem einfalt er að blanda saman texta, hvers kyns myndum og hljóði. Clicker er í senn umhverfi þar sem kennari skapar eða aðlagar verkefni og vettvangur fyrir nemendur að leysa verkefni.

Þrátt fyrir að Clicker hafi upphaflega verið hugsað í kennslu nemenda með sértækar námsþarfir þá er um að ræða mjög sveigjanlegan hugbúnað sem hentar vel á leikskólastiginu og í yngri bekkjum grunnskólans. Clicker fylgir og vandað safn mynda sem gott er að hafa við höndina þegar verið er að setja saman verkefni. Einn helsti kostur Clicker er hversu einfalt það er í notkun.

Fyrirkomulag

Kennsla fer fram í tölvustofu viðkomandi skóla. Einnig er hugsanlegt að notast við fartölvusett ef það er til staðar. Skjávarpi þarf að vera til staðar fyrir tölvu kennara.

Markmið

Að loknu námskeiði eiga nemendur að:

  • geta nýtt sér tilbúin Clicker verkefni í kennslu
  • geta aðlagað tilbúin Clicker verkefni að nemendum
  • geta búið til ný Clicker verkefni frá grunni

Námsgögn

Öll námsgögn á námskeiðinu eru aðgengileg á Netinu og verða kynnt þátttakendum. Hægt er að sækja 30 daga prufuútgáfu af Clicker á vef útgefanda.

Verð og fjöldi nemenda

Námskeiðið kostar 25.000 fyrir allt að 15 þátttakendur.

Hafðu samband og bókaðu námskeið fyrir skólann þinn