Námskeið
Eftirfarandi námskeið eru í boði fyrir skóla, símenntunarmiðstöðvar eða kennarahópa.
Einfaldar teiknimyndasögur með Comic Life
Teiknimyndasagan er skemmtilegt frásagnarform sem höfðar vel til nemenda á grunnskólastigi og hæglega má nýta á fjölbreyttan hátt í fjölmörgum námsgreinum, s.s. íslensku og tungumálakennslu. Á námskeiðinu verður kennd gerð teiknimyndasagna með aðstoð Comic Life hugbúnaðarins sem er sérstaklega hannaður til slíkra verka. Comic Life er til bæði fyrir Windows og Macintosh stýrikerfið og kostar einungis rétt rúmar 3000 kr.
Einn helsti kostur Comic Life er hversu öflugt það er en einfalt í notkun, enda hefur það reynst mjög vinsælt verkfæri í skólastarfi. Hér má sjá nokkur sýnishorn af verkefnum sem unnin eru í Comic Life:
- A Day in the Life of a Slave
- Ecology Cause and Effect
- How to make a P & J Sandwich
- Monarch Cycle
- An Interview with the Blood
- A field trip example
Lengd: 2 klst
Forkröfur: Engar
Markhópur: Leik- og grunnskólakennarar
Prófagerð/verkefnagerð
Á námskeiðinu verður kennd uppsetning á prófum, könnunum og hvers kyns verkefnum í Word ritvinnslunni. Sýnt verður hvernig er hægt að setja upp ýmsar gerðir prófa á einfaldan hátt, s.s. krossaprófa, flókinna og einfaldra stærðfræðidæma, töflur, teikningar o.fl.
Lengd: 1,5 klst
Forkröfur: Engar
Markhópur: Leik- og grunnskólakennarar
Powerpoint fyrir kennara
Námskeið til að auka fjölbreytni í framsetningu á fyrirlestri/kynningu (í PowerPoint, sérstaklega með myndrænum hætti.
Lengd: 1,5 klst
Forkröfur: Engar
Markhópur: Grunn- og framhaldsskólakennarar
Hugarkort í námi og kennslu
Hugarkort er kort eða skýringarmynd sem sýnir tengsl orða, hugtaka, hugmynda eða verkefna miðað við einhverja miðju sem oft er orð eða hugmynd. Hugarkort eru aðferð í námstækni og hugmyndavinnu, aðferð til að flokka og raða hugmyndum og hugtökum og til að setja hugmyndir fram á myndrænan hátt í takt við það hvernig hugurinn virkar. Hugarkort nýtast sem námstækni þannig að nemandi gerir eigin hugarkort til að skilja og muna flókin hugtök.
Hugarkort geta nýst í allri hugmynda- og undirbúningsvinnu svo sem til að greina vandamál og leita að lausnum og sem hjálpartæki við ákvarðatöku. Hugarkort má teikna á blað eða töflu eða vinna stafrænt í þar til gerðum hugbúnaði.
Á námskeiðinu verða kennd undirstöðuatriði í smíði hugarkorta með Mindmanager hugbúnaðinum.
Lengd: 2 klst
Forkröfur: Engar
Markhópur:Öll skólastig
Skapandi hugbúnaður á Netinu
Á Netinu má finna fjöldan allan af vönduðum, ókeypis hugbúnaði getur komið að góðum notum í skólastarfi.
Á námskeiðinu verður veitt greinargott yfirlit yfir margvíslegan skapandi hugbúnað og hvernig nýta má hann í kennslu s.s:
- Google Earth
- Google Sketchup
- Artrage
- Artweaver
Lengd: 1,5 klst
Forkröfur: Engar
Markhópur: Leik- og grunnskólakennarar
Verkfæri á Netinu fyrir enskukennara
Lengd: 1 klst
Forkröfur: Engar
Markhópur: Grunn- og framhaldsskólakennarar
Inngangur að Clicker
Clicker er forrit sem var hannað til þess að styðja við lestur og ritun og er í raun margmiðlunarumhverfi þar sem einfalt er að blanda saman texta, hvers kyns myndum og hljóði. Clicker er í senn umhverfi þar sem kennari skapar eða aðlagar verkefni og vettvangur fyrir nemendur að leysa verkefni.
Þrátt fyrir að Clicker hafi upphaflega verið hugsað í kennslu nemenda með sértækar námsþarfir þá er um að ræða mjög sveigjanlegan hugbúnað sem hentar vel á leikskólastiginu og í yngri bekkjum grunnskólans. Clicker fylgir og vandað safn mynda sem gott er að hafa við höndina þegar verið er að setja saman verkefni. Einn helsti kostur Clicker er hversu einfalt það er í notkun.
Lengd: 2 klst
Forkröfur: Engar
Markhópur: Leik- og grunnskólakennarar
Inngangur að Boardmaker
Töflusmiðurinn Boardmaker er vel þekktur meðal fagstétta sem vinna með fatlaða einstaklinga eða nemendur með sértæka námsörðugleika, s.s. þroskaþjálfa og sérkennara. Hugbúnaðurinn kemur einnig að góðum notum í leikskólum.
Á námskeiðinu verða kynntir undirstöðuþættir Boardmaker töflusmiðsins
Lengd: 2 klst
Forkröfur: Engar
Markhópur: Leik- og grunnskólakennarar
Moodle
Lýsing á námskeiði
Á námskeiðinu verða kynntir undirstöðuþættir Moodle námsstjórnunarkerfisins.
Lengd: 2 klst
Forkröfur: Engar
Markhópur: Grunn- framhalds og háskólakennarar





