Close

Svona gerum við

Námsefni

Hugarkort í námi og kennslu

Hugarkort er kort eða skýringarmynd sem sýnir tengsl orða, hugtaka, hugmynda eða verkefna miðað við einhverja miðju sem oft er orð eða hugmynd. Hugarkort eru aðferð í námstækni og hugmyndavinnu, aðferð til að flokka og raða hugmyndum og hugtökum og til að setja hugmyndir fram á myndrænan hátt í takt við það hvernig hugurinn virkar. Hugarkort nýtast sem námstækni þannig að nemandi gerir eigin hugarkort til að skilja og muna flókin hugtök.

Mindmanager hugbúnaðurinn byggir á hugmyndum um hugkort og er afar öflugt verkfæri. Mindmanager hentar mjög vel í margvíslegri vinnu innan fyrirtækja og stofnana og sérstaklega er hann notadrjúgur nemendum og kennurum við skipulagningu verka og hugmynda eða miðlun upplýsinga.
Hugarkort er kort eða tengslamynd sem sýnir tengsl orða, hugtaka, hugmynda eða verkefna miðað við einhverja miðju sem oft er orð eða hugmynd. Hugarkort eru aðferð í námstækni og ýmiss konar hugmyndavinnu og þankahríð, aðferð til að flokka og raða hugmyndum og hugtökum og til að setja hugmyndir fram á myndrænan hátt.

Hugarkort nýtast sem námstækni þannig að nemandi gerir eigin hugarkort til að skilja og muna flókin hugtök. Hugarkort geta nýst í allri hugmyndavinnu svo sem til að greina vandamál og leita að lausnum og sem hjálpartæki við ákvarðanatöku.

Fyrirkomulag

Kennsla fer fram í tölvustofu viðkomandi skóla. Einnig er hugsanlegt að notast við fartölvusett ef það er til staðar. Skjávarpi þarf að vera til staðar fyrir tölvu kennara.

Markmið

Að loknu námskeiði eiga nemendur að:

  • geta sett upp einföld hugarkort í MindManager
  • geta sett tákn og myndir í hugartkort
  • geta flutt hugarkort úr MindManager yfir í Microsoft Office hugbúnað
  • geta flutt hugarkort úr MindManager yfir á vef

Námsgögn

Öll námsgögn á námskeiðinu eru aðgengileg á Netinu og verða kynnt þátttakendum.

Verð og fjöldi nemenda

Námskeiðið kostar 25.000 fyrir allt að 15 þátttakendur.

Hafðu samband og bókaðu námskeið fyrir skólann þinn