Prófagerð/verkefnagerð

Microsoft Word ritvinnslan er eitt algengasta verkfæri kennara til þess að setja saman hvers kyns verkefni, próf eða kannanir fyrir nemendur.

Á námskeiðinu verða kenndar fljótlegar og einfaldar aðferðir við uppsetning á prófum, könnunum og hvers kyns verkefnum í Word ritvinnslunni. Sýnt verður hvernig er hægt að setja upp ýmsar gerðir prófa á einfaldan hátt, s.s. krossaprófa, flókin jafnt sem einföld stærðfræðidæmi, töflur, teikningar o.fl.

Fyrirkomulag

Kennsla fer fram í tölvustofu viðkomandi skóla. Einnig er hugsanlegt að notast við fartölvusett ef það er til staðar. Skjávarpi þarf að vera til staðar fyrir tölvu kennara.

Markmið

Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að:

  • geta notað atriðalista í Word til að setja upp og vinna með próf og kannanir
  • geta flutt inn teikningar eða ljósmyndir og staðsett
  • geta sett upp og útlitsmótað töflur og reiti
  • geta sett upp og sýslað með stærðfræðidæmi í Word

Námsgögn

Öll námsgögn á námskeiðinu eru aðgengileg á Netinu og verða kynnt þátttakendum.

Verð og fjöldi nemenda

Námskeiðið kostar 25.000 fyrir allt að 15 þátttakendur.

Hafðu samband og bókaðu námskeið fyrir skólann þinn


On the powers of time

    Svona gerum við



    Athugasemdir


    Námsefni



    Flokkar


    Áhugavert

    • Dagana 12. – 14. ágúst 2010 fer fram ráðstefnan Nordic GeoGebra 2010 á Menntavísindasviði. Frekari upplýsingar á vef HÍ.

    • Tryggvi Thayer ritar áhugaverðan pistil um atvinnulíf og skólamál.

    • Fræðslufundur um ADHD og tölvufíkn verður haldinn á vegum ADHD samtakanna miðvikudaginn 30. júní kl. 20 í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Frekari upplýsingar á vef ADHD samtakanna.

    • Myndband og stutt grein Guðjóns H. Haukssonar um allt það óhugnalega efni sem opið er börnum á Netinu. Þetta á erindi við alla foreldra.

    Gagn og gaman

    • Kattaveiðar

    • Tónhendur

    • Flame

    • TurnMood