Snjalltöflur

Hér má finna yfirlit yfir efni sem hentar vel fyrir gagnvirkar töflur og fjallað hefur verið um á vefnum.

Smartboard hugbúnaður

Teningar

Mjög einfalt, en sniðugt forrit. Smellt er einhversstaðar á skjáinn til þess að kasta teningunum. Hentugt t.d. í stærðfræði.

Sækja Umfjöllun


Stigatafla

Sniðug stigatafla þar sem hægt er að telja stig fyrir allt að sex lið (eða sex nemendur). Ýmsar stillingar mögulegar.

Sækja Umfjöllun


Linkup

Verkefni þar sem nemendu tengja einstök orð við flokka með því draga línur úr flokkunum neðst á skjánum yfir í orðin.

Sækja Umfjöllun


Einföld reiknivél

Reiknivélin býður upp á algengustu reikniaðgerðir og hentar vel til nota á skjávarpa, t.d. þegar verið er að kenna notkun á vasareiknum.

Sækja Umfjöllun


Snúningsdiskur

Í þessu forriti er hægt að skrá texta við átta merkimiða og snúa svo örinni þannig að hún lendi á einum þeirra að handahófi.

Sækja Umfjöllun


Sveiflumælir

Skráð eru tvö orð, nest í hornið vinstra- og hægrameginn á skjánum og örin svo færð annað hvort til vinstri eða hægri.

Sækja Umfjöllun


Orðaseglar

Hér er hægt að skilgreina fjölda stakra orða eða heilar setningar sem svo eru birtar á skjánum. Hvert einstakt orð má draga til.

Sækja Umfjöllun


Skeiðklukka

Klukka sem býður upp á einfalda tímatöku ásamt niðurtalningu. hægt er að stoppa klukkuna tímabundið með pásuhnapp (e. pause).

Sækja Umfjöllun


Skeiðklukka

Netlæg skeiðsklukka með hefðbundinni virkni. Fleiri kostir í boði frá sama útgefanda (sjá umfjöllun).

Sækja Umfjöllun


On the powers of time

    Svona gerum við



    Athugasemdir


    Námsefni



    Flokkar


    Áhugavert

    • Dagana 12. – 14. ágúst 2010 fer fram ráðstefnan Nordic GeoGebra 2010 á Menntavísindasviði. Frekari upplýsingar á vef HÍ.

    • Tryggvi Thayer ritar áhugaverðan pistil um atvinnulíf og skólamál.

    • Fræðslufundur um ADHD og tölvufíkn verður haldinn á vegum ADHD samtakanna miðvikudaginn 30. júní kl. 20 í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Frekari upplýsingar á vef ADHD samtakanna.

    • Myndband og stutt grein Guðjóns H. Haukssonar um allt það óhugnalega efni sem opið er börnum á Netinu. Þetta á erindi við alla foreldra.

    Gagn og gaman

    • Kattaveiðar

    • Tónhendur

    • Flame

    • TurnMood