Hinn umtalaði WorldWide Telescope hugbúnaður Microsoft er nú loks aðgengilegur í betaútgáfu. WorldWide Telescope má helst líkja við Google Earth/Sky nema hvað viðfangsefnið er himinngeimurinn í allri sinni dýrð. Forritið er vafalítið það markverðasta sem komið hefur úr herbúðum Microsoft í lengri tíma.
Visible Body er glænýr vefur sem hefur að geyma ítarlegustu sjóngervingu af mannslíkamanum sem til er. Vefurinn er stórkostlegt verkfæri fyrir kennara á öllum skólastigum og auðvitað alla þá sem hafa áhuga á líffræði mannsins.
Dreifing er hafinn á nýrri útgáfu af hinu magnaða þrívíddarteikniforriti Sketchup og geta PC og Makkanotendur sótt sér hugbúnaðinn án endurgjalds á slóðinni sketchup.google.com. Sketchup er einnig til í svokallaðri PRO útgáfu sem kostar tæpa 500 dollara eða um 35.000kr miðað við gengi dollarans þegar þetta er ritað.