Einkaleyfisstofa Bandaríkjanna (U.S. Patent and Trademark Office) hefur gefið út bráðabirgðaúrskurð þar sem einkaleyfi Blackboard fyrirtækisins á ákveðnum þáttum námsstjórnunarkerfa er ómerkt. Úrskurðurinn er mikið gleðiefni og gefur loksins vonir um ánægjuleg endalok þessarar sorgarsögu.
Það fór því miður eins og marga grunaði að bandarískur dómstóll myndi dæma Blackboard fyrirtækinu í hag í lögsókn þess gegn kanadískum framleiðanda Desire2Learn námsstjórnunarkerfisins. Niðurstaðan varð ljós sl. föstudag og samkvæmt henni verður Desire2Learn að greiða Blackboard 3.1 milljónir dollara í skaðabætur. Blackboard getur einnig krafist þess að sala á Desire2Learn kerfinu verði bönnuð [...]
Blackboard sendi í dag frá sér fréttatilkynningu þar sem því er heitið að beita aldrei umdeildu einkaleyfi fyrirtækisins (og öðrum sem enn bíða afgreiðslu) á grunnþáttum námsstjórnunarkerfa (course management systems) gegn opnum hugbúnaði eða heimasmíðuðum lausnum á sviði netbundinna námsumhverfa svo lengi sem viðkomandi kerfi eru ekki hluti af séreignahugbúnaði.
Þær fréttir berast nú frá vesturheimi að illræmt einkaleyfi Blackboard fyrirtækisins á grunnþáttum netbundinna námsumhverfa verði endurskoðað af einkaleyfisstofu þeirra Bandaríkjamanna. Ósk um endurskoðun var komið á framfæri nýlega af Software Freedom Law Center fyrir hönd Sakai stofunarinnar, Moodle samfélagsins og ATutor samfélagsins.
Viðbrögð netverja við einkaleyfi Blackboard á grunnþáttum námsstjórnunarkerfa og lögsókn þess í kjölfarið á hendur kanadíska fyrirtækinu Desire2Learn, framleiðanda samnefnds námsstjórnunarkerfis, hafa einkennst af vantrú, hneykslan og fordæmingu. Blackboard stendur nú eitt og utangarðs rúið trausti og tiltrú hins akademíska samfélags eins og það endurspeglast á Netinu.
Umfjöllunin á Netinu fer fram á opinberum jafnt sem [...]
Blackboard hefur lagt fram kæru á hendur Desire2Learn fyrirtækinu sem stendur að þróun og sölu á samnefndu námsstjórnunarkerfi sem notið hefur töluverðra vinsælda í Bandaríkjunum undanfarin ár. Lögsóknin kemur beint í kjölfar umfangsmikils einkaleyfis Blackboard í Bandaríkjunum á hefðbundinni virkni námsstjórnunarkerfa (LMS/CMS). Einkaleyfið þykir afar vafasamt svo ekki sé fastar að orði kveðið en segja [...]
Blackboard fyrirtækið, framleiðandi samnefnds námsstjórnunarkerfis, hefur fengið einkaleyfi í Bandaríkjunum á netbundnu námsstjórnunarkerfi eða “Internet-based education support system and methods ” eins og segir í einkaleyfinu. Blackboard hefur einnig sótt um sambærilegt einkaleyfi í löndum Evrópusambandsins, Kína, Japan, Kanada, Ástralíu, Singapore, Nýja Sjálandi, Indlandi, Mexíkó, Suður Kóreu, Hong Kong og Brasilíu.
Blackboard fyrirtækið þykist með öðrum [...]