Ubuntu þýðingarveisla og síðbúinn stofnfundur

Skráð 13 February 2008
Flokkur: linux
Engar athugasemdir frá lesendum

Helgina 16. - 17. febrúar nk. gefst öllu áhugafólki um frjálsan og opinn hugbúnað tækifæri til þess að aðstoða við að ljúka þýðingunni á Ubuntu (Hardy Heron) Linuxdreifingunni. Veislan verður haldin í VR-II í Háskóla Íslands, stofu 261 á annarri hæð og mun standa frá 10:00 - 18:00 báða dagana. Þetta verður magnað.


FSFÍ - Félag um stafrænt frelsi á Íslandi

Skráð 06 February 2008
Engar athugasemdir frá lesendum

Laugardaginn 9. febrúar nk. verður haldinn stofnfundur félags um stafrænt frelsi. Fundurinn verður haldinn í Háskóla Íslands, stofu V-257 á annarri hæð VR-II kl. 15:00 - 17:20.


John Perry Barlow á Þingvöllum

  • Í stuttu máli

    Júlí/ágúst hefti Educause Review er komið út. Áhugavert eins og alltaf.
    (0)
    Ég mæli eindregið með þessum frábæra fyrirlestri með Michael Wesch um miðlalæsi og skólastarf. (0)
    Á stofnfundi rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun var kynntur nýr vefur rannsóknarstofunnar. (0)
    Miðvikudaginn 25. júní kl. 11 verður stofnfundur rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun (RannUM) við Kennaraháskóla Íslands. Stutt athöfn verður í stofu H-001 þar sem undirritaður verður samningur um stofnun og rekstur stofunnar. (0)
  • Gagn og gaman