Ég las áhugaverða frétt á Wired blogginu nýlega þar sem segir frá prófessor nokkrum, Michael Moulton, við háskólann í Flórídafylki í Bandaríkjunum. Michael þessi heldur því fram að fyrirlestrar hans séu varðir höfundarrétti og hefur með aðstoð útgefanda síns lögsótt fyrirtæki sem kaupir glósur af háskólanemum og selur áfram.
Steal This Film er fyrri hluti áhugaverðrar heimildamyndar þar sem rakin er saga sænska skráardeilisamfélagsins PirateBay, heimsins stærsta torrentvefjar og 177. vinsælasta vefjar heims samkvæmt Alexa.
“Eru aðdáendur Radiohead nýskari en aðrir neytendur?” spyr höfundur greinar sem nýlega var birt á vef Smáís (Samtök Myndrétthafa á Íslandi) um leið og hann grípur til ósmekklegra og niðrandi ummæla um unga tölvunotendur í því skyni að réttlæta málstað samtakanna. Hann gerir jafnframt lítið úr tilraun hljómsveitarinnar Radiohead til að miðla tónlist sinni á [...]
Good copy - Bad copy er glæný og vönduð dönsk heimildarmynd þar sem fjallað er um listsköpun og höfundarrétt. Rauður þráður myndarinnar er hinn svo kallaði “Rip mix burn” kúltúr sem ef til vill mætti útfæra á íslensku sem rífa, blanda brenna og snýst um þá listsköpun sem felst í að blanda á skapandi hátt [...]