Ég tel mig nokkuð fastheldinn á hugbúnað. Þegar ég loks hef ratað á hið eina rétta forrit þarf töluvert átak til að ég söðli um og taki upp aðra lausn og er ég þó nýjungagjarn að endemum. Á þessari reglu eru hins vegar nokkrar mikilvægar undantekningar.
Snagit hugbúnaðurinn frá Techsmith er eitt af þeim verkfærum sem ég nota mikið í starfi mínu sem kennari og námsefnishöfundur. Snagit er sérhæfður hugbúnaður til þess að taka og vinna með skjámyndir og vafalítið sá besti sinnar tegundar. Fyrir stuttu kynnti Techsmith útgáfu 9 af Snagit og inniheldur hún nokkrar forvitnilegar nýjungar.
Það verður bara að segjast eins og er að þegar kemur að hönnun notendaviðmóta þá komast sérfræðingarnir í Microsoft ekki með hælana þar Steve Jobs og félagar hans hjá Apple hafa tærnar. Til allrar lukku fyrir Windows notendur, þ.e. skólakerfið eins og það nánast leggur sig, hafa hinir ýmsu aðilar tekið sig til og endurskapað [...]
BECTA er sú stofnun innan bresku stjórnsýslunnar sem hefur umsjón með og ráðleggur um framkvæmd á stefnu stjórnvalda í upplýsingatækni. Í nýrri skýrslu stofnunarinnar er breskum skólum ráðlagt frá því að uppfæra í Microsoft Vista stýrikerfið og Office 2007 hugbúnaðarsafnið. Ráðleggingarnar eru í samræmi við fyrri niðurstöður BECTA sem birtar voru fyrir ári síðan.