Undanfarin ár hef ég kennt áfanga í margmiðlun við FB þar sem meginviðfangsefnið er Flash hugbúnaðurinn frá Adobe (áður Macromedia). Í áfanganum sem er hluti af ut-braut skólans er áhersla lögð á kennslu og þjálfun í Actionscript forritunarmálinu og til að gera hann sem allra áhugaverðastan og virkja nemendur sem best forritum við leiki.
Ég komst í tæri við Pencil teikniforritið fyrir stuttu og hef verið að kynna mér kosti þess undanfarið með það í huga að nýta í kennslu á Starfsbraut FB. Pencil er opinn hugbúnaður og til í útgáfum fyrir öll helstu stýrikerfi, þ.e. Windows, Makka og Linux.
Ég var með erindi á sameiginlegum starfsdegi starfsbrauta framhaldsskólanna sem haldinn var í Menntaskólanum í Kópavogi í dag. Í erindinu fjallaði ég um hefðbundna kennsluhætti og námsefni og mögulegar leiðir til þess að vinna á skapandi og um leið skemmtilegan hátt með kennslu- og vinnubækur.