Moodletutorials

Skráð 30 April 2008
Flokkur: Asides
Engar athugasemdir frá lesendum

Moodletutorials vefurinn er sneysafullur af stuttum en hnitmiðuðum myndskeiðum um Moodle námsumhverfið.


Moodle í mikilli sókn

Skráð 30 March 2008
Flokkur: Moodle
2 athugasemdir frá lesendum

Niðurstöður árlegrar könnunar á vegum “The American Association of Community College’s Instructional Technology Council (ITC)” gefa til kynna stóraukna markaðshlutdeild Moodle námsumhverfisins meðal héraðsháskóla (Community College) meðan vinsældir Blackboard fara þverrandi á þeim bæjum.


Moodle er málið

Skráð 30 September 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Moodle fær glæsilegan vitnisburð í spánnýrri könnun ElearningGuild þar sem m.a. var reynt að meta ánægju notenda með netbundin námsumhverfi. Þátttakendur í rannsókninni voru rúmlega 2300. Í rannsókninni fær Moodle hugbúnaðurinn mun betri dóma en aðrar og dýrkeyptari lausnir sem innleiddar hafa verið m.a. við íslenska skóla. Hér má nefna bæði Angel og Blackboard/WebCT.


Moodle - ekki bara fyrir skóla

Skráð 07 April 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Í nýrri og mjög ítarlegri skýrslu eLearning Guild, Report on Learning Management Systems (LMS) kemur berlega í ljós að notkun Moodle einskorðast ekki við hið akademíska umhverfi heldur nýtur lausnin mikilla vinsælda innan smærri og meðalstórra fyrirtækja.


Moodle 1.8 lítur dagsins ljós

Skráð 01 April 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Umfangsmiklum prófunum á nýjustu útgáfunni af Moodle námsumhverfinu, Moodle 1.8, er nú lokið. Mælt er með því að notendur uppfæri vefi sína yfir í hina nýju útgáfu.


Moodle eða WebCT?

Skráð 14 January 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Idahoe State University nýtir WebCT 4.0 námsumhverfið, en þar sem stuðningur Blackboard/WebCT við þá útgáfu rennur út í júlí 2008 eru skólastjórnendur farnir að huga að uppfærslu. Í þessari stöðu væri sjálfsagt að uppfæra í útgáfu 6.0 af WebCT en sökum umfangs slíkrar uppfærslu hefur verið ákveðið að kanna aðra möguleika í stöðunni, þ.e. önnur [...]


Ár Moodle

Skráð 30 December 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Það er skemmst frá því að segja að árið 2006 hefur reynst Moodle ákaflega gjöfult. Moodle hefur verið mikið í fjölmiðlum á árinu enda frá miklu að segja. Hér er stutt samantekt um það helsta sem vakti athygli mína á árinu:


Reykjavíkurborg ákveður að innleiða Blackboard námsstjórnunarkerfið í grunnskóla borgarinnar

Skráð 02 February 2006
4 athugasemdir frá lesendum

Samkvæmt frétt á vef Reykjavíkurborgar frá 11. janúar sl. hefur Menntasvið borgarinnar samið við fyrirtækið Blackboard um kaup á samnefndu námsstjórnunarkerfi fyrir grunnskóla borgarinnar. Stefnt er að því að innleiða kerfið nú í vor og gangsetja þegar í byrjun sumars.
Ákvörðunin um kaup á Blackboard kerfinu var tekin í kjölfar úttektar upplýsingatæknideildar sem tók víst hálft [...]


John Perry Barlow á Þingvöllum

  • Í stuttu máli

    Júlí/ágúst hefti Educause Review er komið út. Áhugavert eins og alltaf.
    (0)
    Ég mæli eindregið með þessum frábæra fyrirlestri með Michael Wesch um miðlalæsi og skólastarf. (0)
    Á stofnfundi rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun var kynntur nýr vefur rannsóknarstofunnar. (0)
    Miðvikudaginn 25. júní kl. 11 verður stofnfundur rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun (RannUM) við Kennaraháskóla Íslands. Stutt athöfn verður í stofu H-001 þar sem undirritaður verður samningur um stofnun og rekstur stofunnar. (0)
  • Gagn og gaman