PicLens er frumleg viðbót (addin) við Firefox, IE og Safari vefskoðarana sem umbreytir þeim í öflug verkfæri til að birta myndir á mun áhrifameiri hátt en áður hefur verið mögulegt. PicLens er sérstaklega spennandi verkfæri fyrir þá sem hafa aðgang að stafrænum kennslutöflum í skólastofunni.
Zoomorama er nýr vettvangur á Netinu til að hýsa og setja fram myndefni, þ.e. ljósmyndir, teikningar og jafnvel myndskeið af YouTube. Ólíkt Flickr, Smugmug og öðrum álíka þjónustum sem hýsa ljósmyndir þá er Zoomorama öðru fremur skemmtileg leið til framsetningar á efni.
Eins og sjá má á vef Starfsbrautar Fjölbrautaskólans í Breiðholti birtum við myndir úr skólastarfinu og viðburðum sem því tengjast á Netinu. Myndirnar hýsum við á Flickr netsamfélaginu og vörpum yfir á starfsbrautarvefinn sem knúinn er af Wordpress kerfinu.
Kosturinn við að hýsa myndir á Flickr eru fjölmargir. Í fyrsta lagi er öll umsýsla mynda á [...]