Microsoft Photosynth hefur opnað dyr sínar almenningi og hafa viðtökurnar verið slíkar að loka þurfti þjónustunni um tíma. Fyrir þá sem ekki hafa lesið fyrri skrif mín um Photosynth þá er hér á ferðinni hugbúnaður sem gerir notendum kleift að skoða stafrænar ljósmyndir í tuga eða hundruðatali frá mörgum ólíkum notendum sem tengdar eru saman [...]
Photosynth er óneitanlega eitt það svalasta sem rekið hefur á fjörur mínar í lengri tíma. Prufið sjálf. Því miður virkar þetta sýnishorn einungis í Internet Explorer, útgáfu 6 eða 7.
Microsoft Live Labs og fjöldi samstarfsaðila eru að vinna að mögnuðum hugbúnaði sem gerir notendum kleift að skoða hefðbundnar ljósmyndir frá mörgum ólíkum notendum sem tengdar eru saman í þrívíddarumhverfi.