Lokið er fimm daga löngum fundi 120 fulltrúa frá 32 af aðildarríkjum ISO samtakanna sem haldinn var dagana 25. - 29. febrúar í Genf í Sviss. Á fundinum var tekist á um athugasemdir tækninefnda aðildarríkjanna vegna ISO/IEC DIS 29500 sem er frumvarp að staðli um skráarsnið. Óhætt er að segja að niðurstaðan komi nokkuð á [...]
WCAG (Web Content Accessibility Guidelines) er staðall sem saminn er af alþjóðlega vinnuhópnum Web Content Accessibility Guidelines Working Group og er ætlað að tryggja fötluðum aðgengi að vefnum. Fyrsta útgáfa hans, WCAG 1.0, var birt árið 1999 en eftir margra ára umfangsmikla endurskoðun, sem enn er ekki endanlega lokið, tekur WCAG 2.0 gildi árið 2008.
Þrátt fyrir hástemndar yfirlýsingar Microsoft um alþjóðlegar vinsældir OOXML staðalsins í nýlegri fréttatilkynningu sem gefin út var í kjölfar nýafstaðinnar atkvæðagreiðslu á vegum ISO fóru leikar þannig að staðlinum var hafnað um svo kallað “fast track” samþykktarferli. Niðurstaðan hefur í för með sér að OOXML verður að fara í gegnum mun ítarlegra ferli þar sem [...]
Mjög góð þátttaka var á opnum fundi staðlaráðs þar sem til umræðu var annars vegar stofnun tækninefndar í upplýsingatækni og hins vegar umfjöllun og hugsanleg afstaða til ISO/IEC DIS 29500 sem er frumvarp að staðli um skráarsnið, nú í frumafgreiðslu hjá JTC. Á fundinum var samþykkt stofnun tækninefndar, en þegar kom að umfjöllun um ISO/IEC [...]
Að frumkvæði Microsoft á Íslandi hefur verið boðað til opins undirbúningsfundar um stofnun tækninefndar um íslenska þátttöku í JTC1 sem er samstarfsnefnd alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO og Alþjóða raftækniráðsins IEC um stöðlun í upplýsingatækni.