Í nýrri stefnumótun ríkisstjórnarinnar varðandi upplýsingasamfélagið er markvisst stefnt að því að upplýsingatækni verði notuð í auknum mæli við nám og kennslu. Til að ná settu marki er ætlunin að styðja við svonefnda UT-leiðtoga í grunn- og framhaldsskólum. En hverjir eru þessir UT-leiðtogar, hvert er hlutverk þeirra og hvernig verður stuðningi við þá háttað?
Endurmenntun Háskóla Íslands stendur fyrir áhugaverðu námskeiði um frjálsan og opinn hugbúnað í haust. Á námskeiðinu verður leitast við að kynna nýútkomna stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað og skoða hvaða afleiðingar hún hefur á upplýsingatækni á Íslandi.
BECTA (British Educational Communications and Technology Agency) hefur að beiðni bresku ríkisstjórnarinnar gefið út ritið “Harnessing Technology: Next Generation Learning” sem er endurskoðuð og uppfærð stefnumótun enskra stjórnvalda um hagnýtingu upplýsingatækninnar í skólastarfi til næstu sex ára.