Close

Svona gerum við

Námsefni

Dagur frjáls hugbúnaðar

sfd_2007.jpgÍ dag er alþjóðlegur dagur frjáls hugbúnaðar. Markmiðið með deginum er að upplýsa almenning um mikilvægi frjáls og opins hugbúnaðar og kosti og gríðarlegt magn vandaðs hugbúnaðar sem stendur öllum sem áhuga hafa til boða án leyfisgjalda. Frjáls og opinn hugbúnaður er sérstaklega mikilvægur í akademísku starfi þar sem fjársveltir skólar þurfa á öllu sínu að halda.

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er einn sá skóli sem hvað mesta áherslu hefur lagt á hagnýtingu frjáls og opins hugbúnaðar í skólastarfi. Um þessar mundir er unnið að því að smíða nýjan vef fyrir skólann í Joomla vefumsjónarkerfinu. Joomla er sama kerfi og 3F, Félag um upplýsingatækni og menntun, notar á vef sínum. Þess má geta að vefur Kennaraháskóla Íslands nýtir opinn hugbúnar sem nefnist Drupal.

Í haust var formlega opnaður Wikivefur FB á slóðinni wiki.dreifnam.is. Wikivefurinn keyrir á Mediawiki kerfinu sem er opinn hugbúnaður, sá sami og er undirliggjandi alfræðiritinu Wikipedia. Kennaraháskóli Íslands hefur einnig sett upp Wikivef sem nýtir Mediawiki.

Innan Fjölbrautaskólans í Breiðholti hefur í nokkur ár verið notast við Moodle sem er netbundið námsumhverfi. Moodle hefur reynst afar mikilvægt verkfæri í námi og kennslu við skólan og um þessar mundir er unnið að mjög áhugaverðu þróunarverkefni sem snýr að notkun netbundinna námsumhverfa í kennslu fatlaðra nemenda á starfsbraut skólans.

Önnur áhugaverð verkfæri opin og frjáls eru t.a.m. WordPress bloggkerfið. Ella Jóna bloggaði nýlega um WordPress í skólastarfi, en WordPress er klárlega ein allra besta blogglausnin á markaðinum í dag. Þess má geta að fréttavefurinn Visir.is nýtir WordPress í blogghluta sínum og hið sama má segja um vefritið Eyjuna. Ég vil einnig benda á Elgg sem ég hef áður fjallað um, en þar er á ferðinni áhugaverð lausn sem t.a.m. Salvör Gissurardóttir hjá KHÍ hefur verið að nýta undanfarin misseri með nemendum. Firefox vefskoðarinn ætti að sjálfsögðu að vera uppsettur í öllum skólum og nemendur hvattir til að nýta hann umfram hinn meingallaða Internet Explorer.

Frjáls og opinn hugbúnaður á ekki einungis erindi í grunn, framhalds og háskóla. Ég mæli með því að þið lesið þennan áhugaverða pistil sem hún Fjóla Þorvaldsdóttir skrifar á vef sínum um opnar lausnir í leikskólastarfi. Ég sakna hins vegar öflugri stuðnings frá opinberum aðilum og stofnunum. Menntamálaráðuneytið mætti koma mun sterkar að þessum málum svo ekki sé talað um Námsgagnastofnun sem virðist nánast fullkomlega áhugalaus eða ómeðvituð um frjálsan og opinn hugbúnað í skólastarfi. Þarna er mikið verk óunnið.

Að lokum vil ég vekja athygli á Ísfoss, félagi áhugafólks um opinn hugbúnað í skólastarfi, sem stofnað var þann 16. september á síðasta ári. Því miður hefur lítið farið fyrir félaginu frá stofnun þess, en vonandi verður úr því bætt.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

  1. Dagur opins og frjáls hugbúnaðar 2007 — Ísfoss09-16-07